SibbaLitla

KóK-isti dauðans!...

25.07.2010 16:47:56 / dull_dull

just my life ;)

jæjja, 
eins og ég sagði seinast þá ætluðum við Kolla að gera e'h gaman, og við gerðum það. ég rakst á Katrínu og bauð henni meiraðseija með
við fórum á Shrek forever after

HÚN ER MOÐERFOKKING AWESOME!

vá, ég hló eins og vitleysingur. Svo eftir það þá fórum við e'h til Katrínar og síðan heim...svo var bara kósíkvöld hjá mér með namminu mínu og bíómynd :P   vííív

ég var e'h að reyna að sækja um vinnu ..lol
fór í Bónus en þá var ekki e'h gaurinn við þannig ég þyrfti að koma á morgun...svo ég fór í Bakaríið í smáranum og sótti þar um og það var e'h soldið sillí...

En hérna, nætursund..ég og vinkonur mínar vorum e'h að pæla í að skella okkur í nætursund, ég held að það sé geðveikt gaman :O  kostað 1000 kall, en ég meina it's probably worth it!.

En geðveikt skrítið....eins og flestir vita þá er ég dáldið hrifin af kóki..dáldið mikið hrifin af því..og ég var að fá mér pulsu og kók, og kókið bragðaðist eins og Pepsi D:   það var ógeð það var pottþétt bara virkilega goslaust.

ég er orðin ogguponsupirripúú á því að það eru svo 40 manns á dag að koma á síðuna mína, en engin komment eginlega...eða athugasemdir. Maður er bara farin að halda að þetta sé e'h tölvugalli...og að það sé actually enginn að lesa bloggið mitt......vá hvað það er sorglegt :(

en þar til næst
-Hildur


» 12 hafa sagt sína skoðun

24.07.2010 14:27:22 / dull_dull

bögg

böggedí,bögg,bögg
jæjja, þá er ég búin í vinnunni svaka fjör! jei
en þá er það næsta challenge..að fá aðra vinnu, húrra fyrir mér

en er ég að heyra rétt að það sé bara e'h 20 og e'h stiga hiti, það er sko bara brjálæði sérstaklega þar sem það er engin sól :s  "global warming . is"

en váá...ég var með það á heilanum að mamma og pabbi ætluðu í útileigu um helgina og var búin að segja öllum það þannig ég hefði engin "plön" og síðan fæ ég að vita bara í gær (föstudaginn) að við værum ekkert að fara þannig ég sit hér að deijja úr leiðindum, en ég er reyndar búin að hafa samband við Kollu mína og við ÆTLUM að gera e'h ógó fjör :D

en já ég fór á lækjabotna, sem var geðveikt gaman og vinur minn hann Sigtryggur var að dansa flashdance og það var svo fyndið að ég lét tónlist og alles og endilega kíkja á það á þessum link http://www.youtube.com/watch?v=jlrrUTpd_WY  hehe þetta er snilld
og svo var Gosi að búa til svona málsháttar síðu..hún er frekar skondin sko..nýbyrjaður með hana en mér finnst gaman að kíkja á hana ^^ http://malshatturdagsins.blogcentral.is/ endilega kíktu.


en ég ætla nú bara ekki að hafa þetta lengra..
-Hildur

» 11 hafa sagt sína skoðun

18.07.2010 12:31:12 / dull_dull

vó...late blogger

hehh..halló fólk, ég var bar búin að gleyma þessari heimasíðu
hehe..silly me:haha:
en hvað segiði fólk, ég er bara búin að vera á fullu í vinnunni (já jei ég er með sumarvinnu)
verð reyndar búin með hana í næstu viku, but wat the hekk
en já vinnan, ég er að vinna í skátunum, það er geðveikt stuð, gerum alltaf e'h nýtt :D
http://www.rvk.is/sumar/PortalData/17/Resources/adildarfelog/Skatafelagid_Arbuar_nytt.jpg
en eriðu þið að djóka með veðrið, sjitt hvað það er geðveikt, ég er einmitt núna í augnablikinu að baða mig í sólinni, 18 stiga hiti í gær, núna er bara 15 stig, en það eru 23 stiga hiti á svölunum mínum, það er svo mikið logn, ég er búin að vera frá klukkan 9 hérna úti, klukkan er núna korter yfir 12;) ...3 klukkutímar, það er ekki slæmt:d
en það erbara búið að vera kósí hja mér, horfa á Beavis and Butthead, naglalakka , baara kósí

fyrir þá sem vita ekki hver Beavis and Butthead eru þá eru það þættir sem fjalla um 2, 15 ára unglingsstráka sem eru bara ..ekki í lagi, þetta er teiknimynd, og þetta er baaara aulahúmor dauðans XD
http://www.consoleclassix.com/info_img/MTVs_Beavis_and_Butthead_snes_ScreenShot1.jpg
en ég komst inní framhaldsskólann sem ég valdi :D húrra fyrir mér :haha: 
Tækniskóli here i come ;)

ég var hjá vinkonu minni í gær með stelpunum það var geðveikt stuð, við geggjað að píkustælast, það er svo fyndið hvað maður breytist eftir manneskjum, ég er bara svona MAGER smápíka þegar við 6 vinkonurnar erum allar saman ...það er snilld.

 og þið munuð aldrei geta hvað ég fæ að gera :D 
taka þátt í Gay Pride
ég er ekki hinsegin eða e'h þannig..en þetta er bara frábært tækifæri, mér hefur alltaf langað til að gera e'h svona :D og þúst Gay Pride!!   AWSEOMENESS
heppin ég..svona er það að þekkja fólk *mont,mont*

en ég held að ég hafi ekkert meira að segja í bili ;)

-Hildur out



» 12 hafa sagt sína skoðun

12.12.2009 17:42:40 / dull_dull

random pælingar

Getur mannskja með engin eyru haft gleraugu?

Eru kvennaklósett á hommabörum :S?

Ef þú værir "genie" og manneskja spurði þig : ég óska þess að þú látir þessa ósk ekki rætast!...hvað myndi hann gera?

en ef Gosi myndi segja... nú mun nefið mitt stækka?

hafði Nói spætur í örkinni?..ef svo, hvað geymdi hann þær? 

ef þú færir aftur í tímann og dræpir mömmu þína myndiru hverfa um leið og þú drapst hana?

 afhverju labba hundar í hringi áður en þeir leggjast? 

afhverju kemur vín og þannig í flöskum á meðan bjór kemur í dósum?

Afhverju, þegar fiskar deyja í vatni þá fljóta þeir, en þega manneskja deyr í vatni þá sekkur hún?

verða fiskar eitthverntíman þyrstir :O ?

baara svona til að láta mann hugsa!

-Hildur


» 13 hafa sagt sína skoðun

04.12.2009 01:47:51 / dull_dull

jaiijaaa

sæleer
ég er byrjuð að vera slappari í því að blogga núna undanfarið ég er alltaf að fara að gera það en síðan bara gleymi ég því eða nenni því bara ekki D:

disess kræst

hehe...dudes ég var batman á grímubellzinuu veei...en ég vann ekki þessa svaka keppni sem var víst í gangi :/
svekkur
butt hú kers þetta er nú bara e'h ömurleg keppni :C

en váá..það eru bara 20 dagar til jóólaaaa...vívívíííííí...ætti bráðlega að setja jólaþemað upp á þessari síðu ??
måske

en já..ég er að fara á íþróttavöku á morgun í skólanum og ætla mér að vaka til 7  (þrjóskan að tala)      líka ef ég sofna þá mun ákveðið fóólk ná í permanet marker og krota á mann -.-    ohh the people i know...
 en anywhos

on the random side:
ég fann út að ég á aðeins 2 rauðar flíkur í skápnum mínum D:   
ég er með óþol fyrir hnetum -.-  (fattaði það á erfiðann hátt)
appelsínugulur fer mér illa

HEY   ég var með bólgna vör um daginn :(
ég lenti í slagsmálum
..haha..þið ættuð að sjá hina manneskjuna...FJÚÚ..!
nei djók
ég fékk lím í andlitið......kastað by me
hitt hljómaði samt meira kúl (:

                                                                               !!!!!!!:O:O:O:O
                                                                               ég þarf að segja ykkur *GG*                                                                                                      mikilvægt!!
                                                                                       
                                                                                     ..THE GAME

þú tapaðir!!

fyrir þá sem kunna ekki "the game"    hér eru leiðbeiningar

leikurinn er mjög einfaldur
-þú ert alltaf að spila leikinn
-þú getur ekki unnið..bara tapað
-þú tapar í hvert skipti sem þú manst eftir leiknum
-þegar þú manst eftir leiknum,þá verðuru að hrópa "ég tapaði" eða "i lost"
-eftir að þú tapar, þá hefuru 30 mín. til að s.s. byrja leikinn uppá nýtt
-markmið leiksins er að láta alla á jörðinni spila leikinn

LEIKURINN...þú varst að tapa honum ;)

æj vá þetta er snilld


úú..á sunnudaginn þá er ég að fara í laufabrauð til ömmu míín :D
hlakka über tiil...eg elsker laufabrauð
svo næsta laugardag er ég að fara á jólaball :D:D

guð hvað ég elska jólatímann :)

en nóg af munnræðu hjá méér
verið sæl
-Hildur   :D



» 10 hafa sagt sína skoðun

10.11.2009 17:54:03 / dull_dull

komumst áfram í skrekk!!

WOOHOOOO...B-R-H-SKÓLI....B-R-H-SKÓLI
jææjja já...breiðholtsskóli komst áfram í skrekk og ég er ekkert smá glöööð!!
en jamm ég fer á úrslitiin pottþéééétt...ef ég fæ miða :S
atriðið okka var líka ekkert smá flott :O

en jamm halloween er búið og ég var ógeðslega töff ;)
hef ekkert meira um það að segja :D

ég fór í svínaflensusprautu :S...i dont like sprautur D:
en ég er nú bara með svona harðsperru-ish verki í öllum vinstri handleggnum sem leiðist uppí vöðvabólgu vinstra megin... :/
ég þoli ekki sprautur -.-

en já...GO BREIÐHOLTSSKÓLI..wúú

þar til síðar ;)
-Hildur

» 12 hafa sagt sína skoðun

20.10.2009 19:09:25 / dull_dull

Halloween ákvarðanir

sæl...:D
jæjja þá kemur brátt Halloween!....persónulega þá finnst mér það skemmtilegra en Öskudagur..Halloween er meira svoan spúkí og bregða og þannig en öskudagur er svo jolly og happý!..
en jamm...ég er búin að ákveða hvað ég ætla að vera :O
hehö ég ætla að vera.......wait for iiit....wait for iiiiiiiit.....
Batman  
ég er byrjuð að fá "thing" fyrir Batman...ég meina..hvernig geturu það ekki :O
en já vá..ég hef abselutely ekkert að segja
..það er ekkert eftir að segja ykkur!..ég er búin að tala og blaðra í hvað 2-3 ár :O

haz it been that long....GOD i have no life :S
en ég verð geðveikt flott..ég bara veit það :D...
...Batman er owsom..bara til að leggja það svona út á blaðið
hann er bestur....
 

<- SEXY BEAST

» 12 hafa sagt sína skoðun

20.10.2009 00:06:21 / dull_dull

hugsanir sem geymast djúpt inní heilabúi mínu!

hæ!...sorry hvað ég er ekki búin að vera að sinna þessari síðu blablabla og allt það

en sko..pælum aðeins í hlutunum

LOFT
loft ..hvernig skildi það vera að anda að sér engu lofti...og pælið í því þegar við öndum erum við að anda e'h sameindum sem eru búin til úr engu...og við snertum það en finnum ekki fyrir því..en hvernig er það að anda engu..skildi maður geta andað út en ekki inn!!!

A...hvernig gerir maður a í fleyrtölu....eitt A mörg Ö...maður segir samt ekki mörg A.

Húmor...hlutir sem við hlægjum af afhverju skildum okkur finnast það vera fyndið!...en þegar steinaldarfólk var til..var það með húmor..eða þróaðist það bara með tímaun eða e'h...

en jamm...ef þið hafið e'h að segja...commentið!!


» 13 hafa sagt sína skoðun

08.08.2009 23:49:52 / dull_dull

Gay Pride

hæææ
búið að vera geðveikt gaman í dag Gay Pride er bara skemmtilegasti dagur ársins :D
en ég er búin að láta myndirnar inn svo endilega að kíkja á þær

en segi ekki meira í bili
-Hildur

» 15 hafa sagt sína skoðun

05.08.2009 02:06:24 / dull_dull

hæ :D

sælt og blessað veri fólkið ;)
jæjja..ég´átti afmæli um daginn...jeii ég er orðin 15 ára víí :)
búin að fá fínar gjafir og svoleiðis
þakka fyrir þær ;D
en já ég ákvað að fara í Elko í dag og kaupa e'h fyrir afmælispeninginn minn þannig ég fékk mér GLÆNÝJA MYNDAVÉL!!! hún er svo MIKLU flottari en sú gamla hún er beisiklí ...grár kassi,með pinkuponsulitlum skjá og eyddi batteríinu áður en maður lét hana í vélina....en þessi  vhúv...B E A -utiful...

en jamm GAY PRIDE á fimmtudaginn ;)
ég ætla svo að fara á laugardaginn í gönguna!
með nýju myndavélina mína :D :D
ég mátti ekki fara á síðasta ári útaf hryðjuverkaárásinni xD
sjörbob..like tht's ever gonna happen
æj..creizí pípol livin in a creizí wörld!!..

ég er búin að vera veik undanfarna daga...það var farið með mig uppá læknavakt til að vera viss um að ég væri ekki með svínaflensuna xD
þeta voru bara streptakokkar..AFTUR...ég er búin að fá hana 2 á þessu ári! :C
BÖGG!

en...ætalktújúleitir
-Hildur
<-Mæ bjútífúl camera <3<3

» 12 hafa sagt sína skoðun

15.07.2009 00:35:36 / dull_dull

hjelú ;)

sælt veri fólkið :D
jæjja,það er bara búið að vera *gg* veður um helgina maður! laugardaginn,sunnudaginn..og barasta líka mánudaginn!
maður er búinn að vera svaka dugleg að fara út og þannig

haha í dag þá var ég,Kolla,Freyr og Kristó e'h að hanga saman og við prófuðum svona orkuskot!..þetta er e'h 2x meira kaffi en í einum kaffibolla og ég og Kolla urðum hyper á secúndunni sem við kláruðum þetta...ekki alveg en samt..og þetta virkaði ekkert á strákana..:/....leim og svo fór ég í bíó áðan og þá sá ég auglýsinguna...ekki ætlað krökkum yngri en 18 ára og fólki sem er ofvirkt og með hjartasúkdóma eða e'h þannig....og haha ég er yngri en 18 ára...og er ekkert beint rólegasta manneskja í heimi xD..haha..kaldhæðnin


en já ég fór í bíó...veei...á Ice Age 3 í 3-D !!...hún er geðveikt fyndin...allaveganna komu atriði sem voru BARA snilld x)


en ekki meira í bili :D
-Hildur

» 15 hafa sagt sína skoðun

10.07.2009 20:00:00 / dull_dull

ójá beibí

hææ
omgomg vinnan er búiiin eftir 4 vikur af vinnu þá eru u.þ.b. 4 vikur eftir af fríi :D
and then camping shall begin

en talandi um útileigu ég vil bara þakka öllum í stóru útileigunni þann 3-5 bara fyrir æðislega skemmtilega helgu og kom alveg ágætis veður inn á milli

en talandi um gott veður VÁ...brjálæðislega yndislegt veður í dag maðurinn! ég gleymdi lyklunum inni þanni ég var bara í sólbaði úti með Koffí (Kristó) og er brunnin í andlitinu!...og af því ég var með sólgleraugu þá er ég með sólgleraugnafar!! xD

en já þetta er bara búið að vera mjög góður dagur hingað til :D fékk pizzu áðan á Castellos mæli með honum maður fær e'h 20 % afslátt ef maður sækir og mæli með pizzu sem heitir Ruccola Pizza alveg ótrúlega góð sérstaklega ef maður er til í tilbreytingu!!;)

og á morgun á Guðjón afmæli bara hamingjuóskir fyrirfram ;P og ég fæ að kíkja í kökur og smá gotterí (A) og eftirá er ég fara að passa börn með Ernu,þetta eru s.s. börn vinnufélaga hennar mömmu og þau voru að fara í brúðkaup þannig við buðumst til að fara að passa , við áttum að fara í frændsystkinahitting er við myndum ekkert komast útaf pakkaðri dagskrá akkurat þennann dag ;)

en já svo á Sunnudaginn þá veit eg bara ekkert hvað ég mun fara að gera nema um 6 leitið þá fer ég til Stefaníu því bróðir hennar á afmæli...já til hamingju með það líka ;) :D :D

talandi um afmæli!
ÉG Á AFMÆLI EFTIR 21 DAAAAG
og ég veit hvað mig langar í afmælisgjöf :D
-myndavél,myndavél,myndavél xD
-og svo vantar mig svo peysur
eða bara flíkur t.d. vettlinga sem hefur ekki göt á :d
-teppi!!..mig vantar svo þægilegt og mjúkt teppi til að ferðast með..hin teppin lykta svo illa xD
-og svo væri líka bara fínt að fá bara smá pening þannig ég geti keypt mér e'h sætt :D

jæjja þá er mín munnræpa komin útúr mér
ithankyou
-HildurSemErMestOwsomÍHeiminum!!


» 15 hafa sagt sína skoðun

16.06.2009 09:47:50 / dull_dull

hæ hó og jibbíjeij og jibbííjeij..það er kominn 17 júní..ehm..nærrum því!

jæjja!
sautjándi júní á morgun..það er samt spáð rigningu..!..það er alltaf annaðhvort glaaðaa sólskin eða rigning.
ég er byrjuð í vinnunni!...er í mállingarvinnunni er sko með ofnæmi fyrir frjókornum.OG útaf því að það er rigning þá get ég ekki málað..þá týni ég rusl :(
shaatt..ég hef ekki hugmynd um hvað ég ætti svovum að segja..það er svo árla morguns að ég er liggur við heiladauð!

-Hildur

» 14 hafa sagt sína skoðun

01.06.2009 21:46:15 / dull_dull

HOME SWEET HOME

ahh...komin heim úr krossánni...úff..og síðan beint heim að læra undir dönskupróf marhh..en sannleika sagt var ég með smá heimþrá...þetta er alltaf svona í byrjun sumarsins...óvanur því að vera svona lengi að heiman!

en já danska...það er tungumál ég er sonna að reyna að læra í henni tek mér pásu sonna af og til ;)
en skiluru..hvurslags orð eru þetta?
grumspffhiigt
læbesnusende
svovlstikken
???
þetta er eins og æla úr þússt....geit!

en já...ég þarf að einbeita mér að lærdómi mínum!....
-Hildur

» 12 hafa sagt sína skoðun

27.05.2009 17:05:33 / dull_dull

afsakið,afsakið

sææl..jæjja núna hef ég verið að bara...EKKI að nenna að blogga maðör
en já prófin eru byrjuð...iff *notsomuchfun* íslenska,enska,stærðfræði og danska
en ég er búin með íslensku og ensku!...enskuprófið var núna í morgun..mér gekk owsom xD..en stærðfræðin er á föstudaginn og danskan á þriðjudaginn í næstu viku...

ég fer um helgina niðrá Krossá!..ekki til að veiða heldur til að endurbæta bústað sem er þar!..vúv..mála,smíða,þrífa og þannig fyrir sumarið..það verður örugglega smá stuð ;)

ohh..mig langar í River Rafting aftur..samt ekki í e'h úber dúber erfitt..en þetta var bara svo gaman...adrenalínið...bleytan...ahh..gúd thææms!

en váááááááv...hvað þið eruð búin að vera dugleg að heimsækja mig maaaðöör! 13079 heimsóknir! æmsóprádofjú

klipping í næsta mánuði...stutthærð ;) ég get bara ekki verið með svona sítt hár :O það er bara martröð í mínum huga..jú ókei maður getur gert meira við það en samt..mér er sama ég ÞOLI ekki á mér hárið..það er svo e'h...*púff* út í loftið alltaf :/

 <- svona er eginlega hvernig ég ætla að hafa það..nema náttúrulega dökkhært

jæjja...þá er kominn tími til að kveðja ;)
-
Hildur


» 15 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 34994
The Bloggist!
Hæ!..þetta er hildur ég ákvað að gera þessa síðu til að tjá mig og segja það sem liggur mér á huga endilega kíkja á myndirnar og kommenta og muna að skrifa í gestabókina frægu -Hildur
Klukkan
Könnun
ætti ég að hætta með síðuna?

Dagsetning
23. febrúar 2012
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1075 dögum
dull-dull 2 ára